Þrautakeppni Miðás á Ormsteiti - Aflýst : (

Keppninni hefur verið aflýst - en reynum aftur á næsta ári!

Þrautakeppni Miðáss er nýr dagskrálíður á Ormsteiti. Um er að ræða liðakeppni sem reynir á þol, þrek og þekkingu þátttakanda ásamt því að vera auðvitað sérlega skemmtileg keppni sem flestir geta tekið þátt í. Keppninni verður skipt niður á 2 daga, miðvikudaginn 18. Ágúst og laugardaginn 21. Ágúst. Hér á eftir eru þrautunum skipt niður á dagana sem og upplýsingar um búnaðar sem þátttakanendur þurfa að hafa.

Miðvikudagurinn 18. Ágúst

Allir þátttakendur mæti í Végarð í Fljótsdal kl. 16:30
17:00 – Végarður: Einn úr hverju liði leggur á stað hjólandi frá Végarði og hjólar 10 km, sá næsti tekur við hljólar 10 km og að lokum sá þriðji tekur við og hjólar sem leið liggur að réttinni á Ormarstöðum. Ekkert stopp verður á klukkunni þessa 30 km svo það skiptir þátttakendur máli að skiptingar gangi vel fyrir sig.
Búnaður: 1 hjól þar sem hver þátttakandi á eftir öðrum notar sama hjólið. Allir þátttakendur verði með hjólahjálma sem passa, s.s 3 stk. Gul vesti 3 stk. (Ef þátttakendur eiga ekki slík vesti þá láti þeir vita með fyrirvara svo nefndin geti útvegað slík vesti).
Stigagjöf: Þeir fái flest stig sem fara 30 km á stystum tíma og svo koll af kolli niður. Allir sem klára keppni fá stig í pottinn.
19:00 – Réttin Ormarsstöðum: Þátttakendur fái í hendur umslag með fjármörkum bæja í Fljótsdal og Fellum og dragi í dilka. Hvert lið fær 10 mörk og 15 mínútur í það heila að leysa þrautina. Hvert lið fær 10 stig fyrir hvert rétt fjármark sem það finnur út. Þátttakendurnir þrír í hverju liði mega leggja sitt að mörkum hér.
Ráðlegging: Þarna ættu þátttakendur að hafa kynnt sér hvernig fjármörk bæjanna í Fellum og Fljótsdal líta út. (linkur á kynningarefni síðar hér). Einnig er auðvitað bara hægt að giska.

19:30 – Réttin Ormsstöðum: Hlaup hefst frá réttinni Ormarstöðum og að Bókakaffi Hlöðum. Um er að ræða ca. 11 km hlaup sem er skipt upp á milli þátttakendana þriggja þannig að hver hleypur ca. 3,7 km koll af kolli. Hér er einnig ekkert stopp á klukkunni alla 11 km. Sama stigagjöf gildir hér eins og með hjólið.

21:00 Bókakaffi Hlöðum: Hvert lið fær umslög með vísu eftir Hákon Aðalsteinsson. Þann 17. Júní var opnuna á Ljóðabænum Egilsstöðum og ljóðaverkefni til heiðurs Hákonar Aðalsteinssonar. Af því tilefni voru sett upp á húsgafla á Egilsstöðum ljóð eftir Hákon. Liðin mega eiga von á einhverju af þeim ljóðum niðurklippt í umslagi og er þrautin sú að koma ljóðinu rétt saman á 15 mínútum.

Laugardagurinn 21. Ágúst

Kl. 15:00 Frá Fellabæ og yfir til Egilsstaða.
Kl. 17:00 Allir þátttakendur stökkvi ofan í Eyvindaránna.