...Ormsteiti er lokið þetta árið... Sjáumst að ári!
FLJÓTSDALSDAGUR ORMSTETITIS
Síðasti dagur Ormsteitis. Gönguferð, ratleikur, fjárdráttur, steinatök, rababaraspjótkast og sultukeppni að ógleymdum mögnuðum tónleikum.
BÆJARHÁTÍÐ Á EGILSSTÖÐUM
Kynnið ykkur fjölbreytta dagskrá sem verður í dag!
HVERFAHÁTÍÐ OG KARNIVAL Í DAG!
Hverfahátíð · Götugrill · Skrúðganga · Setningarhátíð · Hverfaleikar
Fegurðarsamkeppni gæludýra og Markaðsdagur barnanna er í dag
Tómbólur, lukkumiðahappdrætti, skiptimarkaður með leikföng og annað dótarí!
Sönglagakeppnin í Valaskjálf 17. ágúst
20:30 Sönglagakeppni Ormsteitis í Valaskjálf.
Flutt verða lögin frá lagakeppninni og kosin þrjú bestu lögin. Vegleg verðlaun í boði frá
Tónabúðinni, Gistihúsinu Egilsstöðum, Vaski og Tónsmiðju Hafþórs Vals.
Tónleikar 16. ágúst í Egilsstaðakirkju
Tónleikarnir í Egilsstaðakirkju í kvöld verða kl 21:15 en auglýstir í bæklingi kl 20:00 í kvöld þessi breyting er vegna þess að flug kl 18:00 var fellt niður, endilega láta þetta berast!
Golfmótið sem auglýsing var á sunnudag
verður á laugardaginn 13 ágúst.
Gleðilegt Ormsteiti
Dagskránna má finna hér á síðunni og á Facebook.
Forsala á útitónleikana við Sauðána.
Forsala verður í Samkaup Úrval föstudaginn
12. ágúst kl. 16 - 18. Miðaverð er kr. 2000.
Kæru íbúar og gestir!
Nú nálgast hin árlega bæjarhátíð Ormsteitis sem er fastur liður í dagskrá sumarsins á Héraði. Hátíðin er haldin víðsvegar um héraðið og er samstarfsverkefni Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps og fjölmargra fyrirtækja sem gera það kleift að halda hátíðina í þeirri mynd sem hún er í dag. Hátíðin stendur yfir í 10 daga með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Að þessu sinni hefst hátíðin á Norður-Héraði eða á Möðrudalsgleði. Ákveðið var að þjappa viðburðum saman sem haldnir eru á Egilsstöðum frá miðvikudegi til laugardags og enda hátíðina eins og áður á Fljótsdalsdeginum. Hverfahátíðin verður seinni helgi Ormsteitis að þessu sinni eða 19. ágúst, eftir grillið marsera hverfin hvert af öðru í skrúðgöngu með Karnivalstemmingu upp á Vilhjálmsvöll þar sem lagt er kapp um farandbikarinn góða.
Að lokum vil ég þakka öllum sem leggja hátíðinni lið og gera hana að því sem hún er. Gleðilegt Ormsteiti 2011
Guðríður Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri Ormsteitis |