HVERFAHÁTÍÐ Á EGILSSTÖÐUM
17:00 Grillað í hverfum á Egilsstöðum og í Fellabæ. „Hverfi“ úr öllum sveitum geta grillað
saman í Tjarnargarðinum (ef höfðingjar skipa svo fyrir). Grill og kol á staðnum.
Smelltu hér til að sjá litaskiptingu eftir hverfum.
19:00 Skrúðgangan leggur af stað frá Sláturhúsinu, fer
Lagarásinn, Hörgsásinn, Tjarnarbraut og þaðan upp á Vilhjálmsvöll.
20:00 Setningarhátíð - Hverfaleikar á Vilhjálmsvelli.
Karnival- hátíðarstemmning þar sem hverfi bæjarins etja kappi um farandbikarinn góða.
Verðlaunaafhending hverfaleika og 3 flottustu
og frumlegustu búningana og Skreytingaverðlaun.
22:00 Fjölskyldudansleikur Bragganum með Ýmsum Flytjendum í boði Húsasmiðjunnar, Blómavals og Samskipa.

BÚNINGA - OG SKREYTINGAKEPPNI
Valdir verða 3 flottustu og frumlegustu búningarnir á Vilhjálmsvelli eftir hverfaleika. Þeir sem vilja taka þátt skrá sig í keppnina ekki seinna en kl 23:59 þann 18. ágúst.
Skráning hér
Skrá þarf nafn keppanda
og úr hvaða hverfi / lit hverfis viðkomandi kemur.
Vegleg verðlaun í boði.
Einnig er keppt um best skreytta hverfið.
Skreytingar verða dæmdar á föstudaginn 18. ágúst eftir kl 22:00 verðlaun verða veitt á hverfaleikum á Vilhjálmsvelli. Spurningin er hver hreppir verðlaunin í ár sem er gjafabréf frá Samkaup Úrval! Verum með og tökum þátt!
|