FLJÓTSDALSDAGUR ORMSTETITIS
Gönguferð, ratleikur, fjárdráttur, steinatök, rababaraspjótkast
og sultukeppni að ógleymdum mögnuðum tónleikum.
10:00 Gönguferð með Bessastaðaárgili.
Mæting við vegamótin hjá Bessastöðum.
Ratleikur Vatnajökulsþjóðgarðs. Mæting við Snæfellsstofu.
Opið hús í Upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar í Végarði.
12:00 Kosning hefst í Snæfellsstofu í myndasamkeppni Ormsteitis.
Hádegishlaðborð hjá Klausturkaffi.
13:30 Dagskrá á Skriðuklaustri
Tónleikar með Pétri Ben og Eberg auk þess
sem Lögin hans Tóta verða leikin.
Þristarleikar
Keppni í fjárdrætti, steinatökum, rabarbaraspjótkasti og pokahlaupi.
Sultukeppni: Fólk mætir með heimagerðar sultur eða hlaup
og dómnefnd velur þá bestu.
Rababarakeppni barnanna: Börnin mæta með rabarbaraleggi, dæmt eftir lengd frá rót að blaði.
Kaffihlaðborð hjá Klausturkaffi.
16:30 Guðsþjónusta við rústir Skriðuklausturs
með þátttöku Voces Thules.
Ormsteiti slitið |