BÆJARHÁTÍÐ Á EGILSSTÖÐUM
9:30 Ormaveisla í Egilsstaðavík. Hin árlega ormaveisla í umsjá Skátafélags
Héraðsbúa. Skátar ganga fylktu liði uppáklæddir frá Sláturhúsinu kl. 9:00 niður í Egilsstaðvíkina,
grilla brauðorma og þeim skolað niður með fagurgrænum ormadjús.
10:00. Morgunverðahlaðborð í boði Gistihússins Egilsstöðum og Landsbankans með lifandi tónlist.
12:00 Villibráðarsúpu- og brauðkeppni Ormsteitis í Bragganum. Komið og smakkið og verið með í að velja besta kokkinn. Atkvæði almennings gilda til helminga við dómnefnd. Skráning hér - skilyrði fyrir þátttöku er að uppskriftum sé skilað inn áður en keppni hefst á staðnum.
11.00 Formleg móttaka sveitarfélagsins á öllum nýjum íbúum í garðinum við Gistihúsið.
(sjá boðsbréf.)
Bíla- og hjólasýning í miðbænum. Fornbílar, fjallabílar, sleðar, mótorhjól.
14:00 Söngvarakeppni barnanna í boði Samkaup Úrvals og TM–trygginga. Vegleg verðlaun. Skráning þátttöku barna í
söngvakeppni fer fram til kl. 10 á 20. ágúst á hér.
14:30 Leikhópurinn Lotta kemur og skemmtir
börnum sem fullorðnum og gefa eiginhandaráritun í boði Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar og Samkaup Úrval.
Bændasæla
á vegum Félags ungra bænda á Austurlandi við gamla tjaldsvæðið
Kl. 10-14:30
· Húsdýragarður
· Hestateyming Freyfaxa
· Krakkaþraut ·
· Ýmsar landbúnaðartengdar þrautir í þremur aldursflokkum ·
· Sauðfjármarkagáta ·
· Austurlandskeppni í dráttarvélafimi - Keppt um farandbikar UÍA.
Verðlaun í boði fyrir krakkaþraut, dráttarvélafimi og sauðfjármarkagátu.
Mætið á svæðið og takið þátt!
15:30 Söngvarakeppni barnanna, Úrslit og verðlaunafhending
16:00 Verðlaunaafhendingar Framfarafélags Fljótsdalshéraðs,
keppnisgreinum frá Bændasælu, Garðyrkjufélags og Fljótsdalshéraðs fyrir fallegustu garða og jarðir,
Skreytinga- og súpukeppni og Skógarhlaupi Íslandsbanka. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs dregur úr potti heppna vinninghafa í Perluleiknum

Gokart verður á Egilsstöðum 17.-21. ágúst á planinu við Bónus
16:30 Fjársjóðsleit í Selskógi. Leitin að gulli Ormsins fyrir yngstu kynslóðina. Mæting á planinu við Selskóg.
Hreindýraveisla
19:00 Grillaður hreindýrstarfur að hætti yfirkokks Ormsteitis Sigríðar Sigmundsdóttur og dyggum
aðstoðarmanni hennar, Þór Ragnarssyni.
Ætilegur Happdrættismiði í Hreindýraveislu, 3000 kr miðinn, dregið verður úr hámark 230 seldum miðum í veislunni. Vinningurinn er flug fyrir 2 til Evrópu.
Forsala miða í Samkaup fimmtudaginn 18. ágúst 16 -18. Láttu þig ekki vanta!
20:00 Kvöldvaka í bragganum. Fjölbreytt dagskrá. Vinningslög
Sönglagakeppni Ormsteitis, Söngvarakeppni barna verða flutt,
fjöldasöngur og fleira skemmtilegt verður á dagskrá, veislustjóri
mun koma á óvart. Heimamenn stíga á stokk með söng, glensi
og gríni. Tökum höndum saman og höfum gaman!
23:00-03:00 Hinn árlegi Nostalgíu dansleikur Ormsteitis
í Valaskjálf með Á móti sól.
Háskólalestin - einstök vísindaveisla!
Í tilefni aldarafmælis Háskóla Íslands árið 2011 ferðast svokölluð Háskólalest vítt og breitt um landið með fjölbreytta dagskrá sem verður í Grunnskóla Egilsstaða, kl. 12 – 16.
Sprengjugengið er djarfur hópur efnafræðinema
við Háskóla Íslands sem vakið hefur landsathygli fyrir einstakar
efnafræðisýningar þar sem áhorfendur heyra sjá og skynja
stórmagnaðar tilraunir. Sprengjugengi Háskóla Íslands verður
með tvær sýningar í samkomusalnum, með ljósgangi, litadýrð
og sprengingum. Fyrri sýningin er kl. 12:15 og seinni er 15:15.
Ferðalag um undur himingeimsins
Í Stjörnutjaldinu vinsæla má fræðast um stjörnurnar, reikistjörnur, tunglið og önnur fyrirbæri alheimsins. Í einu vetfangi má ferðast á milli reikistjarna, sjá skýjabelti Júpíters, hringa Satúrnusar eða skoða Jörðina frá fjarlægum sjónarhornum.
Stjörnutjaldið er ógleymanleg upplifun fyrir alla fjölskylduna. Sýnt verður á hálftíma fresti. Dagskrá Háskólalestar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Nánar um Háskólalestin á www.ung.hi.is og á Facebook.com |