FEGURÐARSAMKEPPNI GÆLUDÝRA & MARKAÐSDAGUR BARNA
Tómbólur, lukkumiðahappdrætti, skiptimarkaður með leikföng og annað dótarí!
12:00 Skráning í sölubása við Braggann.
Krakkar mæta og stilla upp sínu.
13:00 Markaðurinn opnar.
15:30 Skráning í fegurðarsamkeppni gæludýra.
Fegurðarsamkeppni gæludýra
16:30 Spegill spegill herm þú mér. Hin vinsæla fegurðarsamkeppni gæludýranna á útisviði við Sláturhúsið.
Kattaflokkur, hundaflokkur, fiðurfénaður, blandaður flokkur og að sjálfsögðu verða veitt verðlaun fyrir frumlegasta gæludýrið.
17:30 Fimmleikadeildin með Bingó, flottir og skemmtilegir vinningar.
Gokart verður á Egilsstöðum 17.-21. ágúst á planinu við Bónus
18:00 Vilhjálmsvelli
18:00 Tónlist/skemmtiatriði
19:00 Höttur og Fjarðabyggð takast á í "El Clasico austurlands" á íslandsmótinu í knattspyrnu karla. Stefnt er að því að setja áhorfendamet á knattspyrnuleik á Egilsstöðum.
20:00 Einleikurinn Beðið eftir gæsinni eftir Ásgeir Hvítaskáld verður sýndur á Kaffi Egilsstöðum. Leikari er Jón Vigfússon. Frítt inn. Tilboð á matseðli.
(Athugið að í dagskránni var auglýst að einleikurinn
væri líka á laugardaginn 13. ágúst, en hið rétta er að hann er einungis í dag)
Braggatónleikar
21:00 Lög Ríó Tríós flutt af Hátt upp hlíða í Bragganum við sláturhúsið í boði Flugfélags Íslands og Samkaups Úrvals.
Frítt inn!
MARKAÐSDAGUR Í TJALDINU
VIÐ SAMKAUP OG Í KORNSKÁLANUM
Sveitamarkaður, Götumarkaður í tjaldinu við Samkaup og Kornskála (bragganum) einnig skottamarkaður á plani við Sláturhúsið. Handverk, -list og hönnun – notað og nýtt – uppboð og fleira sem ykkur dettur í hug. Skráning í sölubása hjá Gurrý í síma 843-8878 og á netfangið foss@simnet.is.
Komið með bílinn og seljið beint úr skottinu, "Stæði fyrir bílinn við Kornskála (Braggann)"
Sláturhúsið · „Ef það fæst ekki í Kaupfélaginu þá þarftu það ekki“
18:00 ...þetta er setning sem vekur upp minningar hjá mörgum og nú er hugmyndin að reyna að fanga þær og varðveita til framtíðar. Eða hvaða sögu geymir ekki Sláturhúsið, Naglabúðin, útgerðin á Reyðarfirði, búðirnar á Borgarfirði og Seyðisfirði, bakaríið, trésmíðaverkstæðið, Söluskálinn og Kjörbíllinn svo eitthvað sé nefnt?
Því bjóðum við fyrrverandi starfsfólki og viðskiptavinum og öllum þeim sem hafa einhverju með okkur að deila að hitta okkur í Sláturhúsinu fimmtudaginn 18. ágúst. Sögurnar og minningarbrotin verða tekin upp og í framhaldinu varðveitt í Héraðsskjalasafni Austfirðinga.
Einnig verður hryllingsstuttmynd nemenda í listahóp Vinnuskólans sýnd, en mikið af henni var tekið upp á Kaupfélagssýningunni.
|