íþróttamót og Afmælistónleikar
17:00 Spretts Sporlangamótið í frjálsum íþróttum á Vilhjálmsvelli fyrir 10 ára og yngri. Keppt í spretthlaupi, langstökki, boltakasti og 400 metra hlaupi. Þrautabraut og leikir. Þátttökugjald 500 kr. á keppanda, óháð greinafjölda.
Afmælistónleikar í Egilsstaðakirkju
Athugið tónleikunum seinkar til kl. 21:15
21:15 (ekki 20:00) Hinn fertugi áfangastjóri við ME, Þorbjörn Rúnarsson blæs til afmælistónleika í tilefni af fertugsafmæli sínu í Egilsstaðakirkju. Systkini hans, Hildigunnur, Ólafur og Hallveig munu syngja ásamt afmælisbarninu. Á dagskránni eru íslensk sönglög og dúettar m.a. eftir Hildigunni,ásamt óperuaríum og dúettum. Meðleikari er Þórunn Gréta Sigurðardóttir. |