MENNINGARDAGUR ELDRI
BORGARA Í HLYMSDÖLUM
Sunnudagsmorgun í Sænautaseli.
11:00 – 14:00 Sérstakur
"Timburmannamorgunverður" í boði fyrir þreytta ferðalanga á heimleið.
Náttúrulegir heilsudrykkir úr fjallagrösum, afréttun og fleira gott í kroppinn.
Dregið verður í leik Ferðafélagsins um heiðarbýlin í göngufæri.
Sala og sýning eldri borgara á handverki. Kaffi og meðlæti.
14:00 - 17:00 Félag eldri borgara verður með opið hús í Hlymsdölum. Á boðstólnum verður kaffi með þjóðlegu meðlæti.
Gömlu dagana gefðu mér
15:00 hefst dagskrá sem fengið hefur nafnið, "Gömlu dagana gefðu mér". Þar ætla nokkrir Egilsstaðabúar, innfæddir og aðfluttir að rifja upp liðinn tíma. Dagný Sigurðardóttir og Guttormur Metúsalemsson segja frá því hvernig var að alast upp í hinu unga Egilsstaðaþorpi. Eðvald Jóhannsson mætir með nokkrar sögur í farteskinu og Hjálmar Jóelsson rifjar upp fyrstu kynni sín af Egilsstöðum og Egilsstaðabúum.
Einnig eru kaffigestir sem luma á góðri sögu velkomnir í pontu. Um söng á dagskránni sjá leikskólabörn undir stjórn Bryndísar Skúladóttur.
20:00 Kvöldmessa í Þingmúlakirkju. Séra Jóhanna Sigmarsdóttir sér um predikun. |