ÆVINTÝRI NORÐUR-HÉRAÐS

Taktu daginn snemma og eyddu sólarhring á Norður-Héraði. Fjölbreyttir möguleikar
og mikið um að vera og því mikilvægt að gera ferðaáætlun.

10:00 Gallerý Klaustursel og dýragarðurinn opinn.
Sámabar Aðalbóli Hrafnkelssdal opinn.
Veitingasalan Sjöldólfsstöðum opin

Möðrudalsgleðin

09:00 Gönguferð að hætti heimamanna.
02:00 Messa.
02:00 Leikir og kayakfjör fyrir börnin.
15:30 Kaffihlaðborð.
16:00 Málað að hætti Stórvals - 103 Herðubreiðar málaðar
Málverkamaraþon í tilefni af 103 ára afmæli Stórvals og málað í anda Stórvals.
18:00 Grillhlaðborð.

20:00 Útitónleikar í Selinu Valgeir Guðjónsson.
Hundrað manna tónleikar í Selinu við Sauðánna.
Einungis 100 miðar verða seldir.
Að þessu sinni er það Valgeir Guðjónsson og sem mun heiðra fjöllin með nærveru sinni. Tónleikarnir eru til mótvægis við hundraðþúsund manna samkomu á menningarnótt í Reykjavík.

Forsala verður í Samkaup Úrval föstudaginn
12. ágúst kl. 16 - 18 miðaverð er kr. 2000.

22:00 Einkatónleikar í kirkju.
23:00 Dansleikur fram á rauða nótt.
með hljómsveitinni Nefndinni.

Hestamannamótinu í Fossgerði verður frestað
þar til síðustu helgina í ágúst.

Dagskrá á Egilsstöðum

11:00 Skógarhlaup í boði Íslandsbanka.
Lagt verður af stað frá planinu fyrir framan Selskóg og komið í mark við útibú Íslandsbanka Miðvang 1. Boðið verður upp á tvær hlaupaleiðir, 4 km skemmtiskokk og 10 km hlaup. Mæting kl. 10:30 við Selskóg, lagt verður af stað kl. 11:00 Skráning fer fram í útibúi Íslandsbanka á Egilsstöðum eða á netfanginu sesselja.eysteinsdottir@islandsbanki.is einnig verður hægt að skrá sig á staðnum. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla og kvennaflokki í 10 km hlaupi. Allir fá þátttökupening.
Hér má sjá myndir af hlaupaleiðunum.

13:00 – 16:00 Opnun sýningar á Anne Kampp leirlistamanns og 14 einstaklinga af Fljótsdalshéraði. Sýningin heitir "Hlið við hlið" og er afrakstur hönnunarverkefnis á kertabökkum úr leir í Húsi Handanna.
14.00 Opnun á sýningum nemenda í 6. bekk Egilsstaðaskóla
í sýningarsalunum á Egilsstaðaflugvelli. Sýndar verða myndir
sem þau unnu sérstaklega fyrir Ormsteiti og heitir sýningin
Flugið og Fljótið.

20:00 Einleikurinn Beðið eftir gæsinni eftir Ásgeir Hvítaskáld var auglýstur í dag og þann 18. ágúst en hið rétta er að hann er sýndur 18. ágúst en ekki í dag. Beðist er velvirðingar á því.

Eiðadagur
Í tilefni af 85 ára afmæli Samvirkjafélag Eiðaþinghár ( S.E ) verður haldin
firmakeppni í fótbolta, 7 manna lið á Eiðavelli.10:30 setning móts á Eiðavelli.
11:00 Opnunarleikur, skráning fer fram á skrifstofu UÍA eða í síma 471-1351.
Nánari upplýsingar er að finna á vef UÍA www.uia.is
Kvennfélag Eiðaþinghár verður með veitingasölu í barnaskólanum og veglegar
kaffiveitingar í tilefni 85 ára afmælis SE. Láttu þetta ekki framhjá þér fara!